Aalbláber (Vaccinium myrtillus ) vaxa á ljósgrænu lyngi með tenntum blöðum. Það blómgast í júní og eru blómin rauðgræn eða bleikrauð eins og segir í Plöntuvefsjá.
Í bókinni Matarást sem eralfræðibók um mat og matargerð eftir Nönnu Rögnvaldardóttur er fjallað um aðalbláberjalyng en það vex bæði í norðanverðri Evrópu og Ameríku. Bilberry og huckleberry eru t.d. hvorutvegga aðalbláber og raunar einnig myrtille í Frakklandi. Stikilsberja-Finnur Marks Twain myndi þá hafa verið réttnefndur aðalbláberja-Finnur (Nanna Rögnvaldsdóttir, 1998). Önnur algeng heiti eru Blaeberries (Skotland), whortleberry, og Hurtleberry.
Heimkynni aðalbláberja hér á landi eru líklega einkum Vestfirðir og á Norðurlandi en þau vaxa raunar víða, einnig á Austurlandi og Vesturlandi, m.a. í Borgarfirði, Dalasýslu og á Snæfellsnesi. Aðalbláber geta bæði verið blá og svört. Á Norðurlandi, t.d. í Svarfaðardal, eru svörtu berin nánast ríkjandi og Svarfdælingar kalla þau aðalber. Þessi litamunur hefur ekki verið skýrður. Hitt er að ef hinn blái vaxkenndi hjúpur aðalbláberja er numinn á brott þá kemur svarti liturinn í ljós.