|
Í lok síðasta árs var norrænt rannsóknaverkefni sett á laggirnar til að kynna aðalbláber á alþjóðlegum mörkuðum. Verkefnið þetta er styrkt af Norrænu nýsköpunarmiðstöðinni (Nordisk InnovationsCenter) og hefur nú þegar verið opnuð heimasíða fyrir verkefnið. Áfangaskýrsla er væntanleg á komandi vori. Landbúnðarháskóli Íslands að Hvanneyri er aðili að verkefninu og er Ásdís Helga Bjarnadóttir verkefnastjóri. Ásdís ritaði grein um verkefnið á vefsíðu Landbúnaðarháskóla Íslands . Hægt er að lesa grein Ásdísar með því að smella á Nánar.
Eftirfarandi grein er skrifuð af Ásdísi Helgu Bjarnadóttir Verkefnastjóra aðalbláberjaverkefnis, Landbúnaðarháskóla Íslands. Greinin birtist á vef Landbúnaðarháskóla Íslands. Meðfylgjandi mynd tók Sæmundur Kr. Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Skjólskóga.
Norrænt rannsóknaverkefni til að kynna aðalbláber á alþjóðlegum mörkuðum.
 Aðalbláber eru vinsæl og eftirsótt hér á landi sem og á Norðurlöndunum. Nú hafa norrænir háskólar, rannsóknastöðvar og fleiri aðilar hafið sameiginlega rannsókn á eiginleikum aðalbláberja, með það í huga að finna sérstöðu þeirra til markaðssetningar á alþjóðlegum vettvangi. Háskólinn í Oulu í Finnlandi stýrir samvinnuverkefninu, en markmiðið er að mynda tengslanet milli aðila sem vinna á þessum vettvangi á Norðurlöndunum. Kannað verður hverjir nýta aðalbláber til framleiðslu afurða og í hversu miklu magni. Þá verður athugað hvort og/eða með hvaða hætti er hægt að selja aðalbláber og aðalbláberjaafurðir frá Norðurlöndunum undir einu gæðamerki, þar sem lögð væri áhersla á náttúruvæna og hreina afurð.
Aðalbláber eru vinsæl og eftirsótt hér á landi sem og á Norðurlöndunum. Nú hafa norrænir háskólar, rannsóknastöðvar og fleiri aðilar hafið sameiginlega rannsókn á eiginleikum aðalbláberja, með það í huga að finna sérstöðu þeirra til markaðssetningar á alþjóðlegum vettvangi. Háskólinn í Oulu í Finnlandi stýrir samvinnuverkefninu en markmiðið með því er að mynda tengslanet milli aðila sem vinna á þessum vettvangi á Norðurlöndunum. Kannað verður hverjir nýta aðalbláber til framleiðslu afurða og í hversu miklu magni. Einnig verður athugað hvort og/eða með hvaða hætti er hægt að selja aðalbláber og aðalbláberjaafurðir frá Norðurlöndunum undir einu gæðamerki, þar sem lögð væri áhersla á náttúruvæna og hreina afurð.
Ger verður athugun á vexti og dreifingu aðalbláberjaplantna og gæðum berjanna. Kannaður verður breytileiki erfðamengis þeirra og skyldleiki plantna milli landa. Sérstök áhersla verður lögð á að kanna efnainnihald berjanna og hollustu.
Verkefnið er hluti af áætlun sem ber heitið The New Nordic Food sem er styrkt af the Nordic Innovation Center. Þessi áætlun hefur það að markmiðið að efla samstarf og nýsköpun er lítur að náttúruafurðum á Norðurlöndunum.
Samstarfsaðilar aðalbláberjaverkefnisins eru Artic Flavours samtökin, MTT Rannsóknastöðin í Finnlandi, Landbúnaðarháskólinn í Svíþjóð, Háskólinn í Tromsö og landbúnaðarrannsóknastöðvarnar Biolonk og Bioforsk í Noregi, Danska berjaráðið og Norræni genbankinn auk Landbúnaðarháskóla Íslands. Nokkur leiðandi fyrirtæki á þessu sviði á Norðurlöndunum taka einnig þátt í verkefninu.
Þegar kemur að sölu villtra berja á Norðurlöndunum eru aðalbláber einna mikilvægust, þrátt fyrir að vera aðeins 5-8% af uppskerunni. Árlega eru seld um 500 milljón kíló af aðalbláberjum á Norðurlöndunum. Aðalbláber eru rík af lífvirkum efnum sem gerir þau áhugaverð en samkeppnin er hörð. Víða um heim er mikið tínt og selt af berjum sem koma m.a. frá Norður-Ameríku, Austur-Evrópu og Asíu. Launakostnaður er lítill í sumum þeirra landa sem eiga hér hlut að máli.
Þeir sem nota villt aðalbláber hér á landi í afurðir sem seldar eru á almennum markaði eru beðnir að hafa samband við undirritaða í síma 433 5000. Netfangið er
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
. Það er afar mikilvægt að sjá í hve miklu magni aðalbáber eru notuð hér á landi, en auk þess skiptir máli að miðla upplýsingum um gang verkefnisins. Nánari upplýsingar um það er að finna á heimasíðunni; http://www.oulu.fi/nordicbilberry
Ásdís Helga Bjarnadóttir.
Verkefnastjóri aðalbláberjaverkefnis, Landbúnaðarháskóla Íslands.
Meðfylgjandi mynd tók Sæmundur Kr. Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Skjólskóga.
|
|
|