• Rétt er að benda á að ákveðnar reglur og lög gilda um berjatínslu. Við hvetjum alla til að kynna sér…
    Nánar...
  • Ólíkar aðferðir eru notaðar þegar kemur að berjatínslunni. Sumir not hendurnar einar eða einfaldar berjatínur. Hér má sjá n&y...
    Nánar...
  • Hér er að finna uppskriftir af ýmsum kökum sem innihalda ber eða berjaafurðir. Bláberja...
    Nánar...
  • Eftirfarandi er innsend grein frá Sólveigu Eiríksdóttur mathönnuð.
    Sultur. Stútfullar af vítamínum úr íslenskri ná...
    Nánar...
  • Björk Vilhelmsdóttir og Sveinn Rúnar Hauksson hafa lagt til eftirfarandi uppskriftir. ...
    Nánar...
  • Ekki er Berjavinum kunnugt um að settar hafi verið reglur hér á landi um flokkun berja, eins og víða er…
    Nánar...
  • Jarðarber (fragaria vesca) eru af rósaætt eins og hrútaber enda eru blöðin áþekk, a.m.k. fyrir blómgunartí...
    Nánar...

Berjavinir

Villt ber í íslenskri náttúru

JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Heim arrow Fréttir arrow Nýting berjanna
Nýting berjanna PDF Prenta Rafpóstur
Skrifađ af Konráđ Pálmason   

Bláber (Vaccinium corymbosum) eru ávextir bláberjalyngsins sem er af bjöllulyngs ætt. Bláberin hafa verið mikið rannsökuð undanfarin ár og komið í ljós að þau innihalda sérstaklega mikið magn andoxunarefna og þvi algjör galdur fyrir kroppinn okkar.

Margir heilsusérfræðingarnir kalla þau því “superfoods” eða ofurfæða. Þau eru mjög vinsæl hjá Íslendingum, sem fara til berja sem aldrei fyrr núna í ár enda berjaspretta með eindæmum. Það er um að gera að borða þau sem mest fersk á haustin, en svo kemur að því að þau haldast ekki lengur fersk. Og þá þarf að finna einhverja góða geymslu aðferð. Einfaldast er að frysta þau og færist það sífellt í aukana og er tilvalið að endurnýta gömul box undan ís eða álíka fyrir það.

Algengasta er hins vegar að sulta þau og enn eru sumir að brugga bláberjasaft. Þegar kemur að sultugerðarlistinni þá á ég ótrúlega flottan “gúru”. Það er mamma mín, Hildur Karlsdóttir, sem ég held að sé sú allra flinkasta sem til er í að búa til hollar sultur. Hún sætir þær með þurrkuðum ávöxtum og agavesýrópi í staðin fyrir hvítum sykri og sýður með vanillustöng eða kanilstöng, engiferrót, sítrónu eða appelsínuhýða og annað sætt krydd, allt eftir hvað passar hverju sinni til að gera sætt bragð og þar með að minnka sykurinn.

Hún kenndi mér líka að frysta sultuna í passlega stórum skömmtum. Þannig geymist hún best þegar við sleppum hvíta sykrinum. Ég held að 50/50 ber og sykur heyri sögunni til. Einfaldasta leiðin við að minnka sykur í sultu uppskriftum er hreinlega að nota 90g í stað 100g. Svo má gera ýmislegt róttækara eins og að prófa 25% minni sykur, eða hafa til helminga sykur og þurrkaða ávexti eða sykur og agavesýróp. Ég nota stundum döðlur og agavesýróp til helminga og er það soldið vinsæl sætuefna blanda. Það er til fullt af sætuefnum sem má gera tilraunir með: döðlur, aprikósur, fíkjur, sveskjur, rúsínur, agavesýróp, hlynsýróp, hrásykur, hrátt hunang o.fl. Endilega prófið ykkur áfram.
Ég ætla aftur á móti að kenna ykkur að nota bláber á annan hátt en að sulta þau og er hvort heldur hægt að nota þau fersk eða frosin.
Gangi ykkur sem allra best
Solla

Bláberjamuffins m/kasjúkremi
1 ½ dl möndlumjólk eða sojamjólk eða hrísgrjónamjólk eða mjólk eða vatn
2 tsk sítrónusafi
1 ½ dl agavesýróp
¾ dl kaldpressuð kókosolía eða önnur kaldpressuð olía
1 tsk vanilluduft
2 ½ dl spelt t.d. fínt og gróft til helminga
1 ½ tsk vínsteinslyftiduft
¼ tsk himalaya eða sjávarsalt
Hitið ofninn í 180*C. Setjið möndlumjólk (eða annan vökva) í matvinnsluvél ásamt sítrónusafa, agavesýrópi, kókosolíu og vanilludufti og hrærið í smá stund. Blandið þurrefnunum sama í skál og bætið síðan útí þessa blöndu. Endið á að hræra bláberjunum létt útí. Setjið í ykkar uppáhalds muffins form eða bréf og bakið í um 18-20 mín eða þar til þetta er alveg gegnum bakað. Ef þið ætlið að hafa krem á þeim þá er best að láta þær kólan fyrst.

Kasjúkrem:
2 dl kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 2-4 klst
2 dl bláber
1 dl agavesýróp
allt sett í blandara og blandað vel saman, einnig er hægt að nota matvinnsluvél. Ef blandarinn ykkar er lúinn er líka ráð að setja kremið fyrst í matvinnsluvél og síðan í blandarann


Blár morgunhristingur úr íslenskum bláberjummmmmmmm
2/3 dl kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 4-6 klst
5 döðlur, steinlausar
1/2 tsk vanilluduft
1/2 tsk grænt duft t.d. Alkalive (má sleppa)
1/2 ltr eða 5 dl bláber
9-10 dl vatn
byrjið að setja 4-5 dl af vatni í blandarann ásamt restinni af uppskriftinni og blandið þar til silkimjúkt - bætið restinni af vatninu útí eða þar til þið hafið fengið ykkar réttu áferð á hristingnum


Bláberjanammi
2 dl kókosmjöl
2 dl döðlur
½ tsk vanilluduft
smá himalayasalt
nokkur korn cayennepipar
11/2 dl bláber
2 msk tahini (eða möndlusmjör)
Setjið kókosmjöl + döðlur + vanilluduft + s+c í matvinnsluvél og blandið vel. Bætið bláberjum útí og blandið ör stutt (teljið upp á 5) . loks setjið þið tahiniið útí og blandið aftur örstutt eða þar til það hefur blandast inn í deigið. Búið til kúlur Gott að setja í frysti í smástund. Þessi botn geymist best í frysti, en einnig nokkra daga í kæli.

Molar

Vissir þú að……………….

Gott er að hræra kramin bláber með góðri sætu í smástund og búa þannig til bláberjahræru sem er tilvalið að frysta.

Þegar bláber eru fryst kjósa sumir að setja einfalt lag af þeim t.d. á bökunarpappír og inn í frysti. Þegar þau eru frosin eru þau sett í box, þannig verða þau lausari og auðveldara að afþýða þau. Smart ekki satt…….


Sagt er að villt bláber hafi einstaklega hátt magn andoxunarefna og annarra efna sem galdra í kroppnum. Allir í berjamó

 
< Fyrri   Nćsti >
Joomla Templates by Joomlashack