Fréttir berast nú daglega til Berjavina um frábæra berjasprettu víða um land. Einmuna blíða tryggir að hægt verður að tína ber svo lengi sem frostlaust er. Meðfylgjandi myndir voru sendar inn af velunnurum vefsins en þær sýna svo ekki verður um villst að berin eru vel þroskuð og bíða eftir að verða tínd.
Uppskeran er frá dagsferð um Borgarfjörðinn og tínt var á ýmsum vel völdum stöðum. Ekki er annað að sjá en að þær stöllurnar, Vilborg og Bára, séu ánægðar með fenginn hlut og nú bíður þeirra að vinna úr berjunum.
Á meðfylgjandi myndum má sjá að uppskeran af einni dagsferð er býsna góð og færum við Vilborgu, Báru og Rut bestu þakkir fyrir innsendinguna. Berjavinir hvetja alla sem farið hafa í berjamó í sumar að senda okkur línu með fréttum um afraksturinn.