• Rétt er að benda á að ákveðnar reglur og lög gilda um berjatínslu. Við hvetjum alla til að kynna sér…
    Nánar...
  • Ólíkar aðferðir eru notaðar þegar kemur að berjatínslunni. Sumir not hendurnar einar eða einfaldar berjatínur. Hér má sjá n&y...
    Nánar...
  • Hér er að finna uppskriftir af ýmsum kökum sem innihalda ber eða berjaafurðir. Bláberja...
    Nánar...
  • Eftirfarandi er innsend grein frá Sólveigu Eiríksdóttur mathönnuð.
    Sultur. Stútfullar af vítamínum úr íslenskri ná...
    Nánar...
  • Björk Vilhelmsdóttir og Sveinn Rúnar Hauksson hafa lagt til eftirfarandi uppskriftir. ...
    Nánar...
  • Ekki er Berjavinum kunnugt um að settar hafi verið reglur hér á landi um flokkun berja, eins og víða er…
    Nánar...
  • Jarðarber (fragaria vesca) eru af rósaætt eins og hrútaber enda eru blöðin áþekk, a.m.k. fyrir blómgunartí...
    Nánar...

Berjavinir

Villt ber í íslenskri náttúru

Bláberjadagar í Súđavík

Heimsækið vef Bláberjadaga

Image

Hver er á vefnum?

Berjavörur frá Amazon

 

Einn besti vefþjónn allra tíma.

JSN ImageShow - Joomla 1.5 extension (component, module) by JoomlaShine.com
Heim
Upphaf Bláberjadaga í Súđavík

Berjavinir mættu til leiks í Súðavík fimmtudaginn 25. ágúst. Þótt kul væri í lofti var mikill hugur í heimamönnum og öllum undirbúningi fyrir Bláberjadagana lokið. Veitingastaðirnir Amma Habbý og Jón Indíafari þéttsetnir og hinir ýmsu hljómlistamenn voru við æfingar víðs vegar um bæinn. Veður er hið ákjósanlegasta og berjasprettan er góð. Hægt er að fylgjast nánar með fréttum frá Bláberjadögum í Súðavík með því að smella  HÉR.

 
Meira um sprettuna 2011

Þær fréttir sem fengist hafa frá tengiliðum Berjavina virðist sem sprettan sé með minna móti þetta árið. Kemur þar aðallega til að hitastigið síðastliðið vor og fyrripart sumars var afar óhagstætt. Einnig hefur lítil rigning haft áhrif á sprettuna. Ekki eru þó allar fréttir slæmar. Svo virðist sem berjasprettan sé afar staðbundin. Eyjólfur Sturlaugsson Dalamaður segir á blogg sínu. "'Í Vopnafirði rákumst við á ansi ætileg og glæsileg krækiber. Fundum þau einnig stór og svört í Borgarfirði eystri. Svo þar hófst berjaátið þetta árið." Þess má einnig geta að sjaldan bregst berjasprettan í Mjóafirði.

 

 

Nánar...
 
Berjasprettan 2011

Ađalbláber Ljóst er að berjasprettan þetta árið verður ekki með sama hætti og síðastliðin ár. Kuldatíð í vor og framan af sumri hefur augljóslega áhrif á berjasprettuna. Þetta þarf ekki að merkja að engin ber verði þetta árið. Þvert á móti, berin verða bara lengur að þroskast og verða seinna tilbúin til tínslu. Uppskerutímabilið verður þar af leiðandi styttra og betra er að vera viðbúinn og nýta hvern dag til berjatínslu þegar þar að kemur. Berjavinir munu að sjálfsögðu reyna að afla frétta af berjalöndum og berjasprettu eftir því sem tök eru á. Berjavinir hvetja alla sem upplýsingar hafa að senda okkur línu það má gera með því að smella hér. Hafið samband.

 
Bláberjadagar í Súđavík

Uppskeruhátíðin Bláberjadagar í Súðavík

Vestfirðingar láta sitt ekki eftir liggja þetta árið. Íbúar í Súðavík skipuleggja nú Uppskeruhátíðina Bláberjadagar sem verður haldin dagana 26.-28. ágúst. Þetta er mikill atburður fyrir alla berjavini og ástæða til að hvetja alla sem eiga þess kost að skella sér til Súðavíkur í sumar. Dagskrá Bláberjadaga er afar fjölbreytt, og segja má að viðburðir verða um allan bæinn. Ætlunin er að gera Bláberjadagana að árlegum viðburði í Súðavík og hvetja fólk til að skemmta sér saman, tína ber og njóta þess besta sem náttúran hefur upp á að bjóða. Berjavinir munu að sjálfsögðu birta frekari upplýsingar um hátíðina þegar dagskráin hefur verið staðfest.

 

Nánar...
 
Nýting berja

Margar aðferðir eru notaðar til að geyma berin. Sultugerð, saftir og frysting eru hvað vinsælastar. Ein aðferð sem ekki hefur verið mikið fjallað um er þurrkun berja. Nú eru fáanleg heimilistæki sem upplagt er að nota til að þurrka berin, jafnvel aðra ávexti líka. Öll næringarefni sem í berjunum finnast varðveitast og hægt er að gæða sér á þurrkuðum berjum allt árið. Berjavinir hafa í umboðssölu þurrkara sem nálgast má í hliðarstiku og sýndar eru á meðfylgjandi myndum. Þess má geta að Amazon vefverslunin er ein alvinsælasta og öruggasta vefverslun sem til er. Smellið á myndir til að stækka.

 
Innflutningur bláberja

Athyglisvert er að skoða hversu mikið af bláberjum er flutt inn til Íslands. Árið 2009 var flutt inn til landsins,  86407 kíló (86 tonn) af bláberjum. Það vekur einnig athygli okkar að yfir 60 tonn af þessu magni streymir til landsins á aðal berjatímanum þ.e. frá júní fram í september. Þar af um 38 tonn í júlí og ágúst. Fyrir þetta magn greiða innflytjendur yfir 122 miljónir (CIF). Reikna má með að neytendur greiði allt að fjórfalda þessa upphæð. Á sama tíma fara okkar eigin ber til spillis en talið er að eingöngu 3% af villtum berjum í íslenskri náttúru séu tínd. Er ekki kominn tími til að taka höndum saman, nýta berin okkar og spara þannig stórar upphæðir? Berjavinir hvetja alla sem áhuga hafa á nýtingu berjanna að setja hafa samband hér á vefnum.  Smellið á myndir til að stækka og skoða tölur sem teknar eru af vef Hagstofu Íslands.   

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 Nćsta > Endir >>

Úrslit 1 - 12 af 33
Joomla Templates by Joomlashack